Þátttakendur í Loftslagsvænum landbúnaði hljóta landbúnaðarverðlaunin 2022
Landbúnaðarverðlaunin í ár hlutu Bollastaðir í Austur-Húnavatnssýslu en að búinu standa Borghildur Aðils og Ragnar Bjarnason. Verðlaunin voru afhent á Búnaðarþingi 2022 sem hafði yfirskriftina „framsýnn landbúnaður“. Aðrir verðlaunahafar voru lífrænt vottaða mjólkurvinnslan Biobú og Karólína Elísabetardóttir, sauðfjárbóndi. Svandís Svavarsdóttir afhenti verðlaunin en verðlaunagripurinn er hannaður af vöruhönnuðinum Ólínu Rögnudóttur fyrir íslenska hönnunarmerkið FÓLK.
Loftslagsvænar aðferðir sem auka framleiðni og hagræðingu í búrekstri
Bændurnir á Bollastöðum eru þátttakendur í verkefninu Loftslagsvænum landbúnaði og eru að innleiða loftslagsvænar aðferðir sem minnka kolefnissporið en auka um leið framleiðni og hagræðingu í búrekstrinum.
Í aðgerðaáætlun Bollastaða í loftslagsmálum fyrir árin 2020 til 2025 eru metnaðarfullar og raunhæfar aðgerðir sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ber þar helst að nefna minni notkun tilbúins áburðar með betri nýtingu búfjáráburðar, belgjurtaræktun og nákvæmnisdreifingu. Einnig er markmið þeirra að draga úr iðragerjun með aukinni framleiðslu á hvern grip og draga saman í olíunotkun með hagræðingu í notkun véla. Hjónin á Bollastöðum vinna einnig að kolefnisbindingu með landgræðslu, leggja áherslu á sjálfbæra landnotkun, ræktun hagaskóga og skjólbelta ásamt því að meta möguleika til nytjaskógræktar. Hringrásarhagkerfið er þeim hugleikið þar sem þau leitast við að viðhalda verðmætum auðlinda eins og kostur er.
Mikill heiður að fá landbúnaðarverðlaunin fyrir innleiðingu á loftslagsvænum lausnum
Borghildur og Ragnar telja það mikinn heiður að fá landbúnaðarverðlaunin fyrir innleiðingu á loftslagsvænum lausnum í þeirra búrekstri og vonast til þess að verða fyrirmyndir fyrir þá bændur sem stefna að því að innleiða loftslagsvænar aðgerðir í sínum búskap.