Fara í efni
Yellow Blue Green
Mynd/Bjarki Sigursveinsson

Heimsókn í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum 2023

Stóra-Mörk undir Eyjafjöllum

Árlega hittast þátttakendur og leiðbeinendur í Loftslagsvænum landbúnaði á einhverju þátttökubúanna. Þetta er mikilvægur þáttur í verkefninu þar sem bændur læra hver af öðrum og fá fræðslu frá ráðgjöfum um þætti sem geta haft áhrif á búreksturinn. Í sumar buðu Aðalbjörg Ásgeirsdóttir og Eyvindur Ágústsson í heimsókn í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum en einnig var Hólsgerði í Eyjafirði heimsótt. Þátttakendur velja á hvorn staðinn þeir mæta, eftir því sem hentar betur hvað varðar staðsetningu og tímasetningu.

Í Stóru-Mörk er búið með nautgripi, bæði til mjólkur- og kjötframleiðslu en einnig með sauðfé ogennfremur er þar rekin ferðaþjónusta. Bændurnir þar hafa verið þátttakendur Í loftslagsvænum landbúnaði frá árinu 2020 og unnið að markmiðum sem m.a. miða að því að minnka notkun tilbúins áburðar án þess að skerða magn uppskeru og fóðurgæði, sá niturbindandi plöntum í allar nýræktir á búinu og minnka olíunotkun. Í Stóru-Mörk er unnið mjög öflugt landgræðslustarf og hlutu þau sem þar búa m.a. landgræðsluverðlaunin 2021. Þau hafa markvisst unnið að því að bæta ástand illa gróins lands og nú er markmið þeirra að endurheimta birkiskóg á Merkurnesi.

Dagurinn byrjaði á því að Aðalbjörg og Eyvindur sögðu frá búrekstrinum, sögu bæjarins og þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir í sínum rekstri. Þau hafa nýverið sameinað jarðirnar og reksturinn í Stóru-Mörk I og III. Þau hafa verið mjög öflug í uppgræðslu og Stóra-Mörk er eitt af fáum búum sem hefur verið í verkefninu Bændur græða landið frá upphafi. Fyrir hádegi var mikil áhersla lögð á túnrækt og uppgræðslu, hvað er hægt að gera til þess að auka og bæta uppskeru. Ráðunautar lögðu m.a. áherslu á að bændur taki jarðvegssýni til þess að þekkja samsetningu og sýrustig jarðvegarins, velji rétt yrki og noti smára til þess að auka niturbindingu í jarðveginum. Eftir hádegi var Símonarskógur í landi Dalssels skoðaður þar sem skógræktarfulltrúi sýndi umhirðu í nýskógrækt, m.a. snyrtingu og toppaklippingar. Síðan var farið á Geitasand á Rangárvöllum þar sem fjallað var um áhrif ólíkra tegunda og samsetningar af lífrænum áburði á uppgræðslu, en þar eru í gangi tilraunir þar sem borin eru saman áhrif mismunandi lífrænna efna á gróðurframvindu á rýrum mel.